Bestu Víetnam-myndir sem þið hafið séð
Var að rifja upp kynni mín af Platoon í gær og ákvað því í framhaldi að spyrja fólk um þeirra uppáhalds mynd um Víetnamstríðið.
Persónulega vel ég Platoon. Ótrúlega áhrifamikil og sterk mynd sem situr í manni. Sýnir á gagnrýnin en um leið sanngjarnan hátt hvernig áhrif stríð hefur, hvernig það breytir mönnum og stuðlar að sundrung og ósætti meðal manna. Stórkostleg mynd.
Næst set ég Full Metal Jacket. Frábær mynd sem hefur þó reyndar ákveðna galla sem felast aðallega í umhvefinu, myndin var tekin í Englandi og því er umhverfið ekki mjög raunsætt. Myndin inniheldur frábær atriði eins og atriðið á klósettinu og endaatriðið. Vincent D'Onofrio á stórleik í skemmtilegu hlutverki.
Þriðja sætið hjá mér fær Apocalypse Now. Virkilega sterk og góð mynd en það er synd hversu mikinn kraft hún missir undir lokin. Robert Duvall er ógleymanlegur.
Á reyndar eftir að kíkja á myndir eins og The Deer Hunter og Heaven and Earth en ég mun bæta úr því.
Hvað finnst þér...
Ég hef alltof lítið séð þegar kemur að Víetnam-myndum. En svona í fljótu bragði er það Full Metal Jacket sem er best. Telst Forrest Gump með? Hehe..
"Put smarties tubes on cats legs make them walk like a robot." - Jimmy Carr, Q.I.Huff..
Er enginn spes fan víetnam mynda..
#1 Platoon .. þétt mynd og tekst að vera spennandi ásamt því að vera frekar dramatísk.
#2 Born on the 4th of July
#3Apocalypse Now
Mér finnst, og hefur alltaf fundist Full Metal Jacket ekki vera neitt rosaleg mynd, bara afsakið.
Fyrri hluti myndarinnar í "boot camp"inu er virkilega góður en seinni parturinn fannst mér alltaf vera arfaslakur, fannst svo tjíp allt saman bara, voru svo mörg smáatriði sem að bögguðu mig í tætlur.
1.The Deer Hunter
2.Full Metal Jacket
3.Platoon