1. maí 2008
Fjarstæðukennd skemmtun
Einhverra hluta vegna hafði ég aldrei myndað mér neina skoðun á Iron Man. Eftirvænting mín var ekkert rosaleg og ég veit ekki af hverju. Líklega er það samt af því að nokkrar af fyrstu ljósmyndunum sem birtust úr myndinni minntu mig á Flubber. Ætli það hafi samt ekki bara hjálpað, því að með engar væntingar í farteskinu skemmti ég mér bara mjög vel yfir þessari stórmögnuðu ofurhetjumynd.
Hún segir frá Tony Stark (Downey jr.) sem er höfuð vopnaframleiðslufyrirtækisins Stark Industries. Eftir að óðir hryðjuverkamenn ræna honum neyðist hann til að smíða sér ofurbrynju til að sleppa. Í kjölfarið ákveður hann nota ofurbrynjuna til að berjast gegn illum öflum.
Robert Downey Jr. er mjög góður í aðalhlutverkinu. Það hefur reyndar alltaf reynst mér þrautinni þyngra að taka hann alvarlega í bíómyndum, en hér smellpassar hann í hlutverkið án teljandi vandræða. Jeff Bridges er líka skemmtilegur í sinni rullu sem hinn mjög svo teiknimyndasögulegi karakter Obadiah Stane. Sköllóttur með skegg og vindil - mér fannst eins og hann væri teiknaður á köflum.
Aðrir leikarar eru í fínu lagi fyrir utan Gwyneth Paltrow sem er leiðinleg að vanda þó hún sé alveg sæt.
Það besta við myndina er samt hvað hún er látlaus. Jon Favreau leikstjóri heldur myndinni réttum megin við línuna og er ekki með einhverja óþarfa dramatík. Hasaratriðin voru ef til vill færri en einhverjir höfðu búist við en fyrir mér var það mikill plús, því ég er orðinn frekar leiður á að ganga útúr bíósalnum með suð í eyrunum.
Í stað hálftíma langs eltingarleiks sem kostar 30 milljónir dollara fær maður bara þeim mun meira af rosalegum græjum. Það var allavega ótrúlega gaman að sjá allt hátæknidótið á heimili Tony Stark, þrátt fyrir að það hafi verið alveg hrikalega ótrúverðugt. Það verður þó að athuga að maðurinn smíðaði tölvustýrða ofurbrynju lokaður inni í helli. Í samanburði getur talandi tölva með þurran húmor orðið bara nokkuð trúverðug.
Iron Man er sem sagt mjög vel heppnuð. Ég hefði þó persónulega viljað sjá einhverja aðra leikkonu í stað Gwyneth Paltrow en maður fær víst ekki allt. Ég held ég sé bara nokkuð spenntur að sjá Iron Man 2.

Athugasemdir (3)
16. maí 2008 | 21:33
ógeðslega góð mind
23. maí 2008 | 02:17

persónulega finnst mér flestar svona hetjumyndir frekar þreyttar, og þá á ég við spiderman, batman og superman... En mikið rosalega kom Iron Man mér á óvart. Snilldar leikur hjá Robba og einfaldlega frábær heildar fýlingur í myndinni.... Ekki of mikið af klisjukenndum amerískum rembingi, einfaldlega frekar verið að draga úr honum og gera lítið úr honum í leiðinni.... Iron Man er málið, tékkið á henni.
23. mars 2009 | 16:56

Hundrað prósent samála Ísara Daða syni mínum.
Skrá athugasemd
Hvaða einkunn gefurðu The Dark Knight?
Iron Man